Tix.is

Um viðburðinn

Hvað: Einstaklingsverk sviðshöfunda
Hvenær:
- 3. maí kl. 18:00 - 18:30
- 3. maí kl. 20:00 - 20:30
- 4. maí kl. 19:30 - 20:00
Hvar: LHÍ, Laugarnesvegur 91, 1. hæð, L143
Hver: Inga Óskarsdóttir

Morgunþátturinn Vaknaðu, Ísland! hefur verið á sjónvarpsskjá Íslendinga í áraraðir og hafa kynnarnir Elísa Eldjárn og Sölvi Sören löngu tekið sér bólfestu í hjörtum Íslendinga. Í þættinum í dag kemur verðlaunakokkurinn Magðalena í heimsókn og útbýr dýrindis sumarrétt fyrir Elísu og Sölva. Stórleikkonan Marsibil Sól Hagalín mætir síðan í spjall um nýju myndina sína og poppstjarnan BLOSSI lokar þættinum með splunkunýjum slagara. Góða skemmtun!

Leikarar: Eygló Hilmarsdóttir, Guðmundur Felixson, Birnir Jón Sigurðsson, Berta Andrea Snædal, Elva María Birgisdóttir, Álfgrímur Aðalsteinsson
Aðstoðarleikstjóri: Kolbrún Óskarsdóttir