Tix.is

  • 28. - 30. apríl
Um viðburðinn

Loksins er komið að þessu! 10.bekkur Setbergsskóla frumsýnir nýja uppsetningu af stórsöngleiknum Mamma Mia eftir Catherine Johnson og byggður á lögum sænsku hljómsveitarinnar ABBA sem að flestir þekkja eftir sigur þeirra fjórmenninga í Eurovision árið 1974 með laginu Waterloo.

Í Mamma Mia kynnumst við Sophie Sheridan sem er við það að fara að gifta sig. En áður en hún gerir það þarf hún að leysa úr mestu ráðgátu sem hefur herjað á hana: spurninguna um hver er pabbi hennar. Það er þó hægara sagt en gert enda koma 3 til greina! Eftir miklar vangaveltur, rifrildi, spennu, gleði og sorg tekur sagan þó óvænta stefnu sem enginn sá fyrir.

Leikstjórn söngleiksins er í höndum Guðrúnar Heiðu Sigurgeirsdóttur og Maríu Gunnarsdóttur. Unnið er eftir þýðingu Þórunnar Ernu Clausen. Aðstoðarleikstjóri er Jóna Sigríður Gunnarsdóttir en allir nemendur og foreldrar nemenda í 10.bekk Setbergsskóla koma á einn eða annan þátt að verkefninu og má m.a. sjá dugnaðinn í glæsilegri leikmynd og framúrskarandi leik.