Tix.is

Um viðburðinn

Þjóðargersemin Laddi heldur sína fyrstu tónleika ásamt hljómsveit á Akranesi í Bíóhöllinni 19.maí n.k.


Lögin sem Laddi hefur samið og sungið í gegnum tíðina skipta tugum ef ekki hundruðum.
Lög sem hafa fest sig í sessi í þjóðarsálinni og tengjast minningum um gleði og góða tíma. Hver man ekki eftir lögum á borð við „Flikk Flakk“, „Upp undir Laugarásnum“, „Gibba Gibb“, „Búkolla“, „Súperman“ og mörgum fleirum.
Um er að ræða einstakan viðburð sem engin ætti að láta framhjá sér fara.


Hljómsveitina skipa ásamt Ladda:
Magni Ásgeirsson: Gítar/Söngur
Summi Hvanndal:Bassi/Söngur
Valur Freyr Halldórsson: Trommur/Söngur
Arnar Tryggvason:
Hljómborð/Söngur
Pétur Steinar Hallgrímsson: Gítar/Söngur
Ármann Einarsson: Saxafónn
Valgarður Óli Ómarsson: Slagverk