Eydís Evensen - BIOG
Píanóleikarinn og tónskáldið Eydís Evensen gefur út sína aðra breiðskífu, ‘The Light’, þann 26.maí á vegum XXIM Records/Sony Masterworks.
Eydís er fædd og uppalinn á Blönduósi. Áhugi hennar á píanóinu byrjaði þegar hún var ung að aldri, og ekki leið að löngu þar til píanóið varð hennar besti vinur. “Ég man eftir því [sem krakki] að ganga að píanóinu og geta unnið úr hlutum með því að spila á það. Píanóið varð sálfræðingurinn minn, og á sama tíma besti vinur - mér leið alltaf betur eftir að hafa spilað.”
Víðáttan og fegurðin í íslenskri náttúru hefur allað tíð heillað Eydísi. Náttúran hefur spilað veigamikinn þátt í sköpun hennar, þar sem veðurfar, myrkur, jöklar og náttúruundur Íslands skipa sinn sess.
Væntanleg breiðskífa Eydísar, ‘The Light’, endurspeglar átök Eydísar við persónuleg harðindi og erfiða atburði sem eiga sér stað í heiminum. Þrátt fyrir alla þá hræðilegu atburði sem fólk gengur í gegnum er alltaf eitthvað fallegt sem kemur að lokum, það er ljós í enda ganganna.
Fyrir útgáfu væntanlegrar breiðskífu, ‘The Light’, mun Eydís Evensen spila á Íslandi, í Kaldalóni í Hörpu, þann 21.maí. Eydís mun gefa íslenskum áheyrendum tækifæri til þess að heyra forsmekk af tónlistinni af væntanlegu breiðskífunni, auk tónlistar frá fyrstu breiðskífu hennar Bylur, ásamt stuttskífunni Frost.
Fyrir frekari upplýsingar um Eydísi: https://www.eydis-evensen.com/