Tix.is

Um viðburðinn

KVIKMYNDATÓNLEIKAR 

Á þessum einstöku tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Austurlands verður flutt tónlist úr þekktum kvikmyndum sem flestir ættu að kannast við, eins og Star Wars, The Godfather, James Bond, Batman o.fl.Gæsahúðatónleikar fyrir alla fjölskylduna

Húsið opnar kl.15:30 

Ekki missa af þessum stærstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Austurlands til þessa þar sem flutt verður sívinsæl tónlist eftir m.a. John Williams (Star Wars/Stjörnustríð), Nino Rota (Guðföðurinn/The Godfather), Danny Elfman (Batman), John Barry (James Bond) og Ennio Morricone (Once Upon a Time in The West) ásamt fleirum mögnuðum verkum. 

Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson 

Miðaverði verður stillt í hóf og er 4.990 kr fyrir fullorðna og 2490 kr. fyrir börn yngri en 12 ára. Einnig er miðasala við innganginn. 

Megi mátturinn vera með þér!