Tónleikar Hinsegin kórsins, Svona og hinsegin, verða þann 27. apríl í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 20!
Lögin verða ýmist sungin svona eða hinsegin. Á efnisskrá eru þekkt dægurlög og hinsegin perlur sem spanna allan tilfinningaskalann; eitthvað fyrir öll!
Ef þú varst eitt þeirra sem missti af jólatónleikunum okkar þá veistu að hik er það sama og tap og er miði möguleiki á tix.is fyrir litlar 4900kr í forsölu, en eftir 15.apríl hækkar miðaverð í 5500kr.
Kórstjóri Hinsegin kórsins er Helga Margrét Marzellíusardóttir og meðleikari er Halldór Smárason.