Tix.is

Um viðburðinn

Útgáfutónleikar plötunnar Musemum


Tónlistarkonan, lagahöfundurinn og hljóðfæraleikarinn Jófríður Ákadóttir eða JFDR heldur útgáfutónleika plötunnar Museum í Fríkirkjunni í Reykjavík 8. júní en hún kemur út 28. apríl næstkomandi. JFDR er löngu orðin þekkt breyta í íslensku tónlistarlífi. Hún gerði garðinn frægan með tvíburasystur sinni í hljómsveitunum Pascal Pinon og Samaris en er nú á að gefa út sína þriðju sólóplötu. JFDR segir að Museum sé „plata um hreinsun og lækningu; eins og anda fersku sterku lofti í gegnum gamla sjálfið þitt." Hún er innblásin af uppgötvun hugmynda sem týnst hafa í gegn um tíman eftir tímabil af skapandi stöðnun en hafa nú orðið að níu lögum sem fanga þessi hverfulu augnablik sem urðu að þessum tímalausa minnisvarða.