Tix.is

Um viðburðinn

Í tilefni 40 ára útgáfu plötu Þursaflokksins “Gæti eins verið” ætla Eyþór Ingi & Babies flokkurinn að halda tónleika föstudaginn langa, 7. apríl á Sviðinu Selfossi. Platan verður þar leikin í heild sinni og hver veit nema önnur vel valin Þursalög fái að fljóta með.

 

Hinn íslenski Þursaflokkur kom fyrst saman í febrúar 1978 og starfaði óslitið til 1982. Á þeim árum gáfu þeir út 3 breiðskífur, Hinn íslenzki Þursaflokkur (1978), Þursabit (1979), Gæti eins verið (1982) og eina tónleikaplötu, Á hljómleikum (1980). Árið 2008 gáfu þeir svo út plötu með lögum sem ekki höfðu heyrst áður, Ókomin forneskjan, sem og tónleikaplötu, Í höllinni á þorra.

 

Þursaflokkurinn voru þeir Ásgeir Óskarsson, Egill Ólafsson, Karl Sighvatsson, Tómas Magnús Tómasson, Rúnar Vilbergsson og Þórður Árnason.

 

Hljómsveitina skipa þeir:

 

Eyþór Ingi Gunnlaugsson: söngur

 

Elvar Bragi Kristjónsson: bassi

 

Ingimundur Guðmundsson: hljómborð

 

Ísak Örn Guðmundsson: gítar

 

Skúli Gíslason: slagverk


Sviðið, Selfossi