Tix.is

Um viðburðinn

Jón Jónsson og Frikki Dór

Spjall, trall og partý

Bræðurnir Jón og Frikki Dór ætla að koma saman fram á tónleikum í Hljómahöll þann 19. apríl næstkomandi. Með söngraddir sínar, lagabálk og kassagítarinn að vopni er draumur piltanna að ná samsöng viðstaddra í hæstu hæðir. Öll vinsælustu lög bræðranna verða á dagskrá og er af mörgu að taka. „Við lofum gríðarlegu stuði,“ sögðu bræðurnir aðspurðir um hverslags stuði þeir lofa. Ekki missa af stemmningskvöldi með bræðrunum skemmtilegu úr Hafnarfirði.