Tix.is

Um viðburðinn

Áhugafólk um góða tónlist á nú veislu í vændum. Karl Orgeltríó fagnar tíu ára afmæli í ár. Það var stofnað af Karli Olgeirssyni, Ólafi Hólm og Ásgeiri Ásgeirssyni árið 2013 til að spila poppskotinn jazz en snérist fljótlega yfir til popphliðarinnar. Árið 2017 kom út hljómplatan Happy Hour með Ragga Bjarna og núna í mars 2023 mun koma út platan Bréfbátar sem inniheldur ný lög með tríóinu og ýmsum söngkonum. Salka Sól syngur einmitt titillag plötunnar en hún söng einnig á Happy Hour plötunni dúet með Ragga Bjarna eftir Björk, I’ve Seen It All. Salka og tríóið munu flytja lög af þessum plötum ásamt mörgum af eftirlætis lögum sínum.

 

Miðasala á Tix og við innganginn. Miðaverð 4500kr