Húsið opnar kl. 20:00
Tónleikar hefjast kl. 21:00
Það eru 20 ár síðan ég rappaði rapp á sviði í fyrsta skipti. Síðan þá hefur tónlistarstefnan átt mig allan.
Ég ætla að halda upp á það í Gamla bíó 20.maí þar sem ég flakka milli tímabila á ferlinum, tek lög sem mér þykir vænt um en fæ sjaldan tækifæri á að spila í bland við hittara sem flestir ættu að kannast við.
Á sviðinu með mér verða Björn Valur Pálsson (DJ) og Benjamín Bent (trommur) ásamt her af góðum gestum sem hafa unnið með mér í gegnum tíðina. Meira um það seinna.
Þessir tónleikar verða metnaðarfullir og allt lagt í að gera þetta að eftirminnilegu kvöldi fyrir öll þau sem mæta.
DJÖFULL ER ÉG SPENNTUR!
Tónleikarnir eru styrktir af Tuborg - Nike og Red Bull
ATH TAKMARKAÐ MAGN Á FORSÖLUVERÐI
18 ára aldurstakmark