Tix.is

Um viðburðinn

Vortónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs eru jafnframt uppskeruhátíð hljómsveitanna þriggja sem starfa innan vébanda SK. Búast má við fjölmennum hópum á sviðinu enda SK ein stærsta skólahljómsveit landsins. Alls koma fram um 180 börn og unglingar í þremur hljómsveitum og spila fjölbreytta tónlist úr ýmsum áttum.  Yngstu hljóðfæraleikararnir hefja tónleikana en þau hafa æft á hljóðfæri í eitt til tvö ár. B sveitin skipuð nemendum á þriðja til fimmta vetri stígur næst á stokk og spila þau sína tónlist fram að hléi. Eftir hlé mæta elstu krakkarnir á sviðið og leika krefjandi tónverk sem þau hafa verið að æfa í vetur. Krakkarnir lofa tónlist við allra hæfi á tónleikunum og hlakka til að sjá sem flesta í Háskólabíói þann 5. mars.

Stjórnendur hljómsveitanna eru Össur Geirsson og Jóhann Björn Ævarsson.