Tix.is

Um viðburðinn

Lúðrasveit Hafnarfjarðar heldur vortónleika í Norðurljósum, Hörpu, 10. mars kl. 20:00. Á efnisskránni verður tónlist úr ýmsum áttum: sömbur, marsar og kvikmyndatónlist. Frumflutt verður glænýtt verk, Reworks, sem Finnur Karlsson samdi fyrir sveitina, og Eiríkur Rafn Stefánsson blæs flygilhornsóló í Big blue eyes eftir Per-Olof Ukkonen. Einnig verður leikinn Tjarnarmars í minningu Páls Pampichlers Pálssonar sem lést fyrr á árinu.

Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.