Tix.is

Um viðburðinn

Norðanmenn og nærsveitungar athugið!

Vegna fjölda áskorna og bænaskjala er loksins komið að því að fjöllistahópurinn Dömur og herra sýni listi sínar og lystir norðan heiða, nánar tiltekið 24. febrúar á LYST Akureyri.

Hópurinn hefur haslað sér völl bæði sunnan heiða og erlendis undanfarin ár með lostafullum og lífsglöðum fjölbragðasýningum, sannkölluðum revíum sem hafa fallið afar vel í kram áhorfenda.

Fram koma súperdívan Margrét Maack, kynjaveran Vice Versa, hin eina sanna Gogo Starr, Bibi Biox, Maria Callista, Gyða Gyðja ásamt gestum Ungfrú Hringaná, Silver Foxy og C. Rouge.

Ekki er krafa að kunna íslensku enda um sjónræna upplifun að ræða. Vert er að taka fram að sýningin er ekki fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir dónabröndurum eða undrum mannslíkamans.
Aldurstakmark 20+

https://facebook.com/domurogherra

https://www.instagram.com/domur.og.herra/

https://www.tiktok.com/@domurogherra