Tix.is

Um viðburðinn

LOKSINS Á SVIÐINU - BY POPULAR DEMAND - HLJÓMSVEITIN VALDIMAR

Það er okkur á SVIÐINU sönn ánægja að bjóða velkomna til leiks hljómsveitina Valdimar - nú í fyrsta sinn á SVIÐINU og vonandi ekki það síðasta. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um VALDIMAR enda er hljómsveitin landsmönnum vel kunnug með einn öflugasta söngvara landsins í framlínunni. VALDIMAR hefur starfað frá árinu 2009, á sér marga aðdáendur og fylgjendur svo ekki sé talað um frábær lög og lagasmíðar. Það selst fljótt upp á þessa tónleika svo við mælum með því að fólk tryggi sér miða í tíma. Takmarkaður miðafjöldi og aðeins einir tónleikar.