Tix.is

  • 7th of June
  • 10th of June
  • 13th of June
Um viðburðinn

Yfirlýsing frá umboðsskrifstofu Bjarkar

Kæru aðdáendur, Björk og Sena.

Okkur þykir leitt að þurfa að tilkynna að vegna óviðráðanlegra aðstæðna höfum við tekið þá erfiðu ákvörðun að aflýsa Cornucopia tónleikum Bjarkar í Reykjavík í júní.

Upp hafa komið vandamál við framleiðslu tónleikanna sem við sjáum ekki fram á að geta leyst í tæka tíð.Við áttum okkur á því að þetta mun valda miðahöfum vonbrigðum og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Tix miðasala hefur sent póst á alla miðahafa og hafið endurgreiðsluferli á öllum miðum.

Við erum staðráðin í að leita allra ráða til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig og munum yfirfara okkar verkferla með það í huga.

Við vonumst enn til að geta fundið leið til að láta tónleikana verða að veruleika á næsta ári. En þar sem það gæti tekið einhverjar vikur eða mánuði að leysa öll tækni- og skipulagsmál, erum við tilneydd á þessum tímapunkti til að aflýsa og endurgreiða.

Við ítrekum afsökunarbeiðnina og þökkum fyrir þolinmæðina og skilninginn.

OLI / umboðsskrifstofa Bjarkar