Tix.is

Um viðburðinn

Leikfélag Hörgdæla setur nú upp gamanleikritið Stelpuhelgi eftir Karen
Schaeffer í þýðingur Harðar Sigurðarsonar. Þetta er í fyrsta skipti sem
þessi gamanleikur er settur á svið á Íslandi en verkinu hefur gengið vel
víða erlendis. Stelpuhelgi er stórskemmtilegur farsi þar sem vinkonurnar
Meg, Carol og Dot ásamt Ellie dóttur Megs hittast í bústað eina helgi
til að brjóta upp hversdagsleikann.

Vinkonurnar Dot og Meg, báðar nýlega fráskildar, stofna bókaklúbb til
þess að kynnast fólki. Þegar þær auglýsa eftir fleir meðlimum er Carol
eina sem sækir um og fær inngöngu. Bókaklúbburinn ákveður eina
vetrarhelgina að fara í bústað. Markmið helgarinnar er að skemmta sér,
skiptast á sögum, drekka áfengi, borða góðan mat og fara yfir næstu bók
í bókaklúbbnum, lausar við alla karlmenn.
Plönin fara út um gluggann þegar gengur á áfengið og vinkonurnar eru
allar búnar að bjóða hver sínum karlmanninum til sín í bústaðinn, hvert
á hugmyndir gestgjafans. Hasarinn verður yfirgengilegur þegar óveður,
áfengi, lögreglan, stigi, eiturlyf og graðir markar flækjast inn í
söguna.

Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Björn Guðmundsson. Hann er
margreyndur leikstjóri sem hefur leikstýrt á fjórða tug leiksýninga víða
um land. Eins hefur hann verið iðinn við kvikmyndagerð en hann
leikstýrði Áramótaskaupinu árin 2009-2012. Ásamt því leikstýrði hann
kvikmyndunum Astrópíu, Gauragangi og Ömmu Hófí. Gunnar Björn hefur
aðallega fengist við grín og barnaefni á sínum langa leikstjóraferli.

Leikfélag Hördæla var stofnað árið 1997. Saga leiklistar í Hörgárdal er
þó mun lengri. Bindindisfélagið Vakandi og leikdeild Ungmennafélags
Skriðuhrepps höfðu staðið fyrir leiksýningum allt frá 1928.
Leikfélag Hörgdæla og fyrirrennarar þess setja reglulega upp
leiksýningar á félagsheimilinu Melum í Hörgárdal sem er lítið en hlýlegt
hús sem var byggt árið 1934 og tekur rúmlega 100 manns í sæti og hafa
þær sýningar getið sér gott orð til að mynda Með fullri reisn sem var
sett upp árið 2011 og síðan í fyrra Í fylgd með fullorðnum þannig að það
verður enginn svikinn af heimsókn á Mela.

Melar eru rúma 20 km frá Akureyri og því ekki langt að fara. Húsið opnar
hálftíma fyrir sýningu og er sýningin sjálf um það bil tvær klukkustund