Tix.is

Um viðburðinn

Myrkir músíkdagar 2023

Nordic Affect
Halla Steinunn Stefánsdóttir (fiðla/violin),
Marie Stockmarr Becker (víóla/viola),
Hanna Loftsdóttir (selló/cello),
Guðrún Óskarsdóttir (semball/harpsichord).
Special guests: Davíð Brynjar Franzson (gervigreind/artificial intelligence),
Úlfur Hansson (segulharpa/magnetic harp)

Sem leið til að skapa ný tengsl gegnum tónsköpun, fékk listrænn stjórnandi Nordic Affect fjögur tónskáld til að vinna út frá þemanu ‘+1‘. Útkoman er fjögur spennandi verk eftir; Davíð Brynjar Franzson (IS), Lilju Maríu Ásmundsdóttir (IS), rebecca bruton (CA) og Úlf Hansson (IS). Þau takast á við áskorunina meðal annars í gegnum ný hljóðfæri, gervigreind, yfirtöku hljóðfæra og einnig gegnum opna raddskrá, sem ljær öðrum en mannfólkinu gerendahæfni.

Nordic Affect hefur komið sér á kortið sem framsækinn tónlistarhópur. Gagnrýnendur jafnt innan lands sem utan hafa hælt hópnum í hástert, m.a. fyrir; ‘ineffable synergy between the performers’ (San Francisco Classical Voice), sem ‘multi-disciplinary force of nature’ (A Closer Listen) og sem gersemi í íslensku tónlistarlífi (Fréttablaðið). Starf Nordic Affect einkennist af nýstárlegri nálgun og frumleika í verkefnavali en hópurinn hefur frá upphafi flutt tónlist á breiðu bili, allt frá danstónlist 17.aldar, til raftónlistar okkar tíma. Frá stofnun (2005) hefur Nordic Affect komið fram á fjölda hátíða, þar á meðal; TRANSIT Festival (BE), Dark Music Days (IS), November Music (NL), Skanu Mežs Festival (LV), Iceland Airwaves (IS), Ensems Festival (SP), North Atlantic Flux (UK) KLANG Festival (DK), Imago Dei (AU) og Estonian Music Days (EE). Leik Nordic Affect er að finna á geisladiskum frá; Deutsche Grammophon, Smekkleysu, Musmap og Brilliant Classics. Útgáfur Nordic Affect hafa hlotið Íslensku Tónlistarverðlaunin og Kraumsverðlaunin, svo og frábærar viðtökum í erlendum tónlistarblöðum og -miðlum á borð við; The Wire, The New Yorker, I Care if You Listen, NPR og BBC Music. Jafnframt hefur Nordic Affect verið valinn Tónlistarhópur ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum; verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs og valinn Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar. Hópurinn hefur tvisvar haldið í tónleikaferð um Bandaríkin, en Nordic Affect hefur m.a. komið fram í; Constellation í Chicago, Spectrum í New York, Reykjavik festival LA Philharmonic, UC Berkeley Art Museum í Berkeley og National Sawdust í New York. Árið 2018 sendi Nordic Affect frá sér He(a)r, þriðju plötu sína hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus, en hún var valin inn á lista yfir bestu plötur ársins hjá m.a.; The Boston Globe, I Care if You Listen, Morgunblaðinu, Yahoo Entertainment og Second Inversion. Fylgdi hún þar í kjölfar Raindamage (2017), plötunnar sem hópurinn hljóðritaði með Valgeiri Sigurðssyni og Clockworking (2015) og rataði m.a. Bæði á Songs We Love lista NPR í Bandaríkjunum og í uppgjör The New Yorker yfir það besta á plötu-árinu 2015. Meðal verkefna hópsins á næstunni er útgáfa á nýrri plötu með norsku radd- og raftónlistarkonunni Maja S. K. Ratkje. Listrænn stjórnandi Nordic Affect frá upphafi er Halla Steinunn Stefánsdóttir. Hópurinn er styrktur af Tónlistarsjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Reykjavíkurborg.

www.nordicaffect.com
www.instagram.com/nordicaffect
www.facebook.com/nordicaffect

Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd, án hlés.