Tix.is

Um viðburðinn

Kristinn Sigmundsson bassasöngvari og Peter Máté píanóleikari munu flytja ljóðaflokkana  Á þessum kyrru dægrum eftir Tryggva M. Baldvinsson og Liederkreis op. 39 eftir Robert Schumann á tónleikum í Salnum sunnudaginn 26 mars. Tónleikarnir hefjast kl 16:00.

Tryggvi samdi flokkinn Á þessum kyrru dægrum á síðasta ári við nokkur ljóð eftir öndvegisskáldið Hannes Pétursson, með Kristin Sigmundsson í huga. Flokkurinn verður frumfluttur á þessum tónleikum.

Schumann samdi Liederkreis opus 39 í maí, árið 1840, við ljóð eftir Joseph von Eichendorff.  Þetta er einn þekktasti og best heppnaði ljóðaflokkur sem um getur og inniheldur margar af fegurstu perlum Schumanns.

Sjálfur skrifaði hann í bréfi til Clöru, unnustu sinnar:
 „Eichendorff-flokkurinn er rómantískasta tónlist sem ég hef samið .....“

Tónleikarnir eru styrktir af Lista-og Menningarráði Kópavogs.