LOKSINS!
Þú vissir þetta kannski ekki en Sigga Dögg kynfræðingur hefur leynilega flutt hundruði uppistanda í heimahúsum en núna LOKSINS kemur hún almennilega út úr grín-skápnum og ÞÉR boðið að koma og vera með!
Hver sýning er einstök þar sem Sigga Dögg velur af handahófi (úr stórum potti) kynlífssögur & spurningar sem hækka blóðþrýstinginn og auka hjartsláttinn. Og kitla hláturtaugarnar.
Allt má ræða, allt má skoða, og í hléi gefst þér færi á að spyrja nafnlaust (ef þig langar! Engin pressa!)
Nú loksins er hægt að gera eitthvað skemmtilegt á bóndadaginn, valentínusardaginn og konudaginn!
Hér verður hlegið, grátið og kannski pissað smá í sig. Þetta verður allavega mjög gaman.
Sýningin er með hléi og þá er DRYKKUR INNIFALINN! VÚHÚ!