Tix.is

Um viðburðinn

„Ég er listamaður. Ég heyrði að ykkur vantaði einn slíkan.”

„Djöfulsins snillingur” er svört kómedía sem fjallar um árekstra milli sjálfsmyndar listamanns og raunveruleika innflytjanda. Uriela, nýkomin til Íslands, sækist eftir að fara í áheyrnarprufu hjá Þjóðsirkúsnum. Í stað þess að komast inn í listaelítuna fellur hún í hringiðu kostulegra umsóknar- og auðkenningarferla, sem vélrænt sjálfsafgreiðslukerfi Krónunnar sér um að meta.

Leikritið er fjöltyngdur samruni texta, líkamlegs leikhúss, myndlistar og tónlistar, innblásið af „Inferno” eftir Dante og „Babettes Gæstebud” eftir Karen Blixen.

Alþjóðlegi leikhópurinn Reykjavík Ensemble skapar ný leikhúsverk sem kynna fjölþjóðlega og fjöltyngda listamenn hér á landi. Djöfulsins snillingur er fjórða leikverk hópsins, skapað með atvinnufólki í leikhúsi sem koma með sínar eigin upplifanir af að flytja til Íslands, listamenn sem hafa gengið í gegnum innflytjenda kerfið.

Höfundar: Ewa Marcinek and Pálína Jónsdóttir; Leikarar: Jördis Richter, Heidi Bowes, Jordic Mist, Paul Gibson, Snorri Engilbertsson; Leikstjóri: Pálína Jónsdóttir; Leikmynd og búningar: Klaudia Kaczmarek; Aðstoð við leikmynd og búninga: Wiola Ujazdowska; Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson; Hljóð og tónlist: Íris Thorarins; Sýningarstjóri: Nanna Gunnars; Leikmyndasmiður: Dawid Reiss; Saumakona: Bozenna Kubs, Framleiðslu-og kynningarteymi: Ewa Marcinek, Nanna Gunnars, Pálína Jónsdóttir; Framleiðslu-og kynningaraðstoð: Kaamos Metsikkö; Grafísk hönnun: Snæfríð Þorsteins, Klaudia Kaczmarek; Ljósmyndun: Klaudia Kaczmarek; Tæknimaður: Áslákur Ingvarsson,

Framleiðandi: Heimsleikhúsið í samstarfi við Tjarnarbíó.

Styrkt af Reykjavíkurborg, Sviðslistasjóði, Nordisk Kulturkontakt og Nordisk Kulturfond.

Sérstakar þakkir: angela rawlings, Auður Snorradóttir, Gudrita Lape, Jason Mechmel, Melinda Wunderbar, Nadia Zadorozna, Rauði krossinn, Robert Zadorozny, Þjóðleikhúsið