Sex framúrskarandi flytjendur; fjórir einsöngvarar og tveir píanóleikarar,
flytja úrval íslenskra einsöngslaga.
Tónleikarnir eru
hluti af tónleikaröðinni Ár íslenska einsöngslagsins, þar sem þekktar og
óþekktar sönglagaperlur fá að skína.
Boðið er upp á nýstárlegan tónleikatíma: sunnudaga kl. 13.30.
Einsöngvarar:
Lilja Guðmundsdóttir, sópran
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzosópran
Eggert Reginn Kjartansson, tenór
Áslákur Ingvarsson, bassi
Píanó:
Edda Erlendsdóttir
Helga Bryndís Magnúsdóttir