Tix.is

Um viðburðinn

Alcoa Fjarðaál, í samstarfi við Sláturhúsið og Menningarstofu Fjarðabyggðar, býður börnum á jólasýningu 17. og 18. desember. 

Litla stúlkan með eldspýturnar 

Litla stúlkan með eldspýturnar er ævintýri sem flestir þekkja. Snæfríður Ingvarsdóttir og Sigurður Ingvarsson hafa sett söguna í nýjan og nútímalegan búning. Þetta er stutt leikrit fyrir börn sem kveikir á ímyndunaraflinu og vekur upp samkennd gagnvart þeim sem eiga um sárt að binda og þakklæti fyrir það sem við höfum. 

Sýningin er 25 mínútur og er hugsuð fyrir börn á aldrinum 3–7 ára, en að sjálfsögðu eru öll velkomin. 

Sýningarnar verða alls fjórar á Austurlandi:

• Laugardaginn 17. desember kl. 14 og 15 í Sláturhúsinu, Menningarmiðstöð

Fljótsdalshéraðs, á Egilsstöðum 

• Sunnudaginn 18. desember kl. 11 og 12 í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði 

Ókeypis er á sýninguna í boði Alcoa Fjarðaáls en miða þarf að sækja á Tix.is.

Hver einstaklingur getur sótt sex miða.

 

Góða skemmtun og gleðileg jól!