Tix.is

Um viðburðinn

KK og Karlakórinn Þrestir efna til stórtónleika í Salnum þar sem þeir flytja mörg af helstu lögum KK í gegnum tíðina. KK er einn af ástsælustu tónlistarmönnum landsins og kemur nú aftur fram með Þröstum eftir 12 ára hlé. Þrestir eru elsti starfandi kór á landinu og fyllir 111 ára óslitið starf í Hafnarfirði, eða síðan 1912, en þá stofnaði Friðrik Bjarnason kórinn 19. febrúar. Kórinn hefur gegnum tíðina jöfnum höndum flutt klassísk karlakóralög og dægurlög útsett fyrir hann. Í þetta skiptið er KK í samstarfi við kórinn og hafa þeir Árni Heiðar kórstjóri unnið saman að því að velja lög til útsetninga og hafa hist reglulega til að undirbúa tónleikana. Hér er mikill metnaður og allir leggja sig fram við að gera tónleikana að sögulegum viðburði.

Stjórnandi kórsins og útsetjari er Árni Heiðar Karlsson.