Tix.is

Um viðburðinn

Gott kaffi, smjördeigshörn og tónlistarflutningur beint í æð. Strengjatríó kemur blóðinu á hreyfingu þennan laugardagsmorgun á Mikka ref við Hverfisgötu.

Kaffi og með því og stuttir morguntónleikar á Mikka ref. Mjög takmarkaður sætafjöldi

Fram koma: 

Lau 14. jan kl 9 og 10:30:
Lily Francis, fiðla,
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla,
Sæunn Þorsteinsdóttir, selló.

Kaffi, smjördeigshorn og tónlist eftir Johann Sebastian Bach, Hafliða Hallgrímsson, Áskel Másson, Henri Vieuxtemps, György Kurtág og Eugène Ysaÿe.

-------------------------------------

Tertulia er tónlistar- og matarviðburður sem kemur nú til Reykjavíkur frá New York þaðan sem viðburðirnir eru upprunnir. Veitingahús fyllast af tónlist og milli verka er borinn fram glæsilegur kvöldverður. Dagana 13.–15. janúar verða tónleikar á 5 mismunandi stöðum þar sem boðið verður upp á viðeigandi veitingar með.

Hægt er að kaupa passa á alla viðburðina 5 eða staka miða á hvern fyrir sig. Takmarkaður miðafjöldi í boði.