Tix.is

Um viðburðinn

Söngkonan og lagahöfundurinn Anna Sóley sendi frá sér fyrstu breiðskífu sína 9. september 2022. Í tónlistinni koma saman mismunandi stefnur; módern jazz, grúf, popp og alþýðutónlist, ásamt textum með einn fótinn í raunveruleikanum og hinn í draumheimum. Þema plötunnar eru frásögur sem eiga það sameiginlegt að fjalla um mörk milli fortíðar og nútíðar, raunveruleika og skáldskapar, og kannski einna helst forvitnilegar persónur. Einhverjar tilraunir eru líka með ljóðaflutning og talað mál yfir tóna.

Anna Sóley Ásmundsdóttir – söngur
Mikael Máni Ásmundsson – gítar
Birgir Steinn Theodórsson – kontrabassi
Magnús Trygvason Eliassen – trommur
Steingrímur Teague – píanó / hljómborð / raddir
Tumi Árnason – tenór saxófónn

Linkar á vefsíðu/samfélagsmiðla:
www.annasoleyartistry.com
www.instagram.com/annasoleyasmundsdottir