Tix.is

Um viðburðinn

Loksins á Sviðinu, Selfossi!

Skóli lífsins er splunkunýtt og ferskt uppistand Jakobs Birgissonar. Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur og alltaf er fullt út úr dyrum.

„Annað eins talent hef ég ekki séð áður.” — Ari Eldjárn, uppistandari.

„Klikkað fyndið. Mæli dúndurmikið með.” —
Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og skáld.

„Soldið mikið frábært uppistand.” — Hugleikur Dagsson, uppistandari og skopmyndateiknari.

Jakob kom sem stormsveipur á sjónarsviðið haustið 2018, þá aðeins tvítugur. Síðan þá hefur hann haldið fjölda sýninga og skemmt fólki um land allt.


Sviðið Selfossi

Jakob Birgisson