Tix.is

Um viðburðinn

Klara Elías býður til hátíðartónleika í Sundhöll Hafnarfjarðar sunnudagskvöldið 18. desember kl 20:00. Klara mun flytja sín uppáhalds hátíðarlög í órafmögnuðum útgáfum ásamt Kjartani Baldurssyni gítarleikara og fleiri góðum gestum. 

Tónleikarnir eru í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og eru gestum að kostnaðarlausu en það er nauðsynlegt að bóka miða og sýna hann við inngang. Þar sem það eru takmörkuð sæti munu færri komast að en vilja og við biðjum ykkur að gefa miðann áfram eða láta vita ef þið komist ekki svo að öll sæti séu nýtt. 

ATH: Ekki er í boði að synda eða fara ofan í laugina á meðan tónleikum stendur en setið verið í kringum hana.