Tix.is

Um viðburðinn

Það er óhætt að segja að ABBA tónleikasýningin hafi heldur betur slegið í gegn! Hún hefur verið sýnd í meira en 10 ár fyrir fullu húsi bæði í Eldborg og Hofi. Það þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart því ABBA er vinsælasta hljómsveit allra tíma að Bítlunum undanskildum og hafa plötur sveitarinnar selst í yfir 370 milljónum eintaka. Einvalalið íslenskra söngvara og tónlistarmanna flytur lög þessarar goðsagnakenndu sveitar. Tryggðu þér miða strax, því þú vilt ekki missa af þessu!

Söngur:
Hansa
Jóhanna Guðrún
Selma Björns
Stefanía Svavarsdóttir
Regína Ósk

Hljómsveit undir stjórn Karls Olgeirssonar:
Karl Olgeirsson, flygill/hljómborð
Haraldur Sveinbjörnsson, hljómborð
Ólafur Hólm, trommur/slagverk
Einar Þór Jóhannsson, gítar
Vilhjálmur Guðjónsson, gítar/saxófónn/fiðla o.fl.
Friðrik Sturluson, bassi

Lýsing: Agnar Hermannsson
Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson
Búningar: G. Elsa Ásgeirsdóttir klæðskeri
Sviðsetning: Selma Björnsdóttir