Tix.is

Um viðburðinn

ÖRFÁ SÆTI Í A+ Á BESTA STAÐ VORU AÐ LOSNA!
UPPSELT Í VIP OG FÁIR LAUSIR Í A OG B
LAUSIR MIÐAR Í C SVÆÐI - NÝTT ÓDÝRARA SVÆÐI!

DAGSKRÁ KVÖLDSINS:
19:00 - Húsið opnar
20:00 - Sýning hefst
20:30 - Veitingasala lokar
21:40 - Áætlaður endir*
* Dagskrá getur riðlast og er birt með fyrirvara.

NÝ STÚKA OG NÝTT VERÐSVÆÐI:
Athugið að ný stúka hefur verið tekið í gagnið og nýtt verðsvæði þar með orðið til; verðsvæði C í gömlu stúkunni, sem kostar aðeins 7.990 kr.

VIP MEET AND GREET MIÐAHAFAR:  Vinsamlegast sæktu VIP armband við komu í Tix afgreiðsluna á staðnum. Þegar sýningu lýkur haltu kyrru fyrir í sætinu þínu. Bíddu í sætinu eftir að gæslufólk komi og fylgi þér í “meet and greet”. Hafðu armbandið á þér allan tíman; ef þú tekur það af þér þá kemstu ekki í “meet and greet”. Manneskja á vegum Jim Jefferies mun smella af þér mynd með Jim á símann þinn, þannig að vinsamlegast hafðu síman tilbúinn; ólæstan og camera appið opið og tilbúið.

Mynd af svæðinu hér
Mynd af salnum og verðsvæðunum hér
Spurt og svarað hér

----------------

Jim Jefferies er einn vinsælasti uppistandari sinnar kynslóðar. Hann hefur skemmt fólki um árabil um allan heim með beittum og ögrandi húmor sem einnig vekur fólk til umhugsunar. Hann hefur verið nefndur einn af topp fimm uppistöndurum heims og var valinn uppistandari ársins á Just for Laughs Festival sumarið 2019.

Eftir að hafa fengið glóandi umsagnir fyrir Oblivious túrinn er hann aftur mættur til leiks með viðkomu á skerinu okkar og kemur fram í Laugardalshöllinni 21. maí með nýja sýninguna sína Give’em What They Want.

Jim hefur einnig skrifað undir bókaútgáfusamning, sett á laggirnar The Jim Jefferies Show á Comedy Central og heldur úti hinu geysivinsæla podcasti I Don't know about That with Jim Jefferies þar sem hann tekur á viðfangsefnum líðandi stundar með með sinni klassísku “no bullshit” aðferðafræði. Intolerant kom út á Netflix á síðasta ári og sló í gegn.

Fimm verðflokkar eru í boði:
VIP:            24.990 kr.      (gólf, gult á mynd)
A+:             14.990 kr.       (gólf, fjólublátt á mynd)
A:               13.990 kr.       (gólf, rautt á mynd)
B:               12.990 kr.       (nýja stúka, blátt á mynd)
C:               7.990 kr.        (gamla stúka, grænt á mynd)

Mynd af sal hér. 

VIP Meet & Greet miðinn inniheldur:
- Eitt sæti á besta stað, í fjórum fyrstu röðunum.
- Meet & Greet fyrir einn með Jim Jefferies.
- Mynd fyrir einn með Jim Jefferies.

Meet & Greet mun fara fram á tónleikastað, fyrir eða eftir sýningu. Haft verður samband við kaupendur VIP miða þegar nær dregur sýningu og fyrirkomulagið staðfest.

Hægt er að kaupa hjólastólapláss í kaupferlinu á fjórum stöðum í salnum. Kaupa þarf einnig fyrir fylgdarmann en verðið er 50% af ódýrasta verðsvæði eða 5.995 kr. Ef hjólastólapláss eru uppseld er ekki hægt að bæta við fleiri. 

Umsjón: Sena Live