Tix.is

Um viðburðinn

Verkefnið Misbrigði er unnið af nemendum í fatahönnun á 2. ári við Listaháskóla Íslands í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands. Rannsakaðar eru leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu og aðferðafræði hönnunar. Sjónum er beint að tísku á Íslandi í tengslum við sjálfbærni.

Ljóst er að endurvinnsla mun spila veigamikið hlutverk í framtíðinni. Það að draga þurfi úr framleiðslu og breyta aðferðum þarf hinsvegar ekki að koma niður á sköpunargleðinni. Þvert á móti munum við hafa enn meiri þörf fyrir sköpun og þekkingu. Óhófleg neyslumenning og stuttur líftími textíls gerir tísku- og textíliðnaðinn mjög óumhverfisvænan. Þessu má breyta meðal annars með því að glæða gömul klæði og efni nýju lífi og vinna með þau á skapandi hátt.

Nemendurnir sem sýna í ár eru átta:
Andri Páll Halldórsson Dungal
Arthur Werner
Brynja Líf Haraldsdóttir
Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir
Jóhanna María Sæberg
Leslie Adhara Curumaco Pineda
Rubina Singh
Sigurey Bára Reynisdóttir

Tískusýningin verður haldin þann 3. nóvember í svarta kassanum, leikhúsrými Listaháskóla Íslands Laugarnesvegi 91, gengið inn ofan við húsið.

Tískusýningin verður sýnd tvisvar, kl. 18 og kl. 19. Hægt er að nálgast ókeypis miða á tix.is