Tix.is

Um viðburðinn

Í tilefni af Vetrardögum í Víðistaðakirkju verður blásið til tónlistarveislu þar sem kórtónlist, þjóðlagatónlist og dægurtónlist eftir Benny Andersson verður flutt. Benny er sennilega þekktastur fyrir glæsilegan feril með ABBA en hann hefur einnig samið mikið af fallegri kórtónlist og þjóðlagatónlist.

Kór Víðstaðasóknar flytur kórtónlistina ásamt Kór Seljakirkju og Barbörukórnum.
Hljómsveitin er skipuð þeim Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara, Matthíasi Stefánssyni fiðlu- og gítarleikara og Ástvaldi Traustasyni píanó- og harmoníkuleikara.

Einsöngvarar eru þau Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Benedikt Sigurðsson en einnig eru einsöngvarar úr röðum kórfélaga.

Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæmundsson