Tix.is

Um viðburðinn

Uppselt er á alla tónleika.


Aðventutónleikar KK & Mugison

Það er ekki oft sem að þessir tveir snillingar snúa bökum saman og spila með hvor öðrum. Hér er því um að ræða algjörlega einstakt tækifæri til að sjá þessa tvo tónlistarmenn saman á tónleikum.

Ekki þarf að fjölyrða um sigra KK og Mugison enda hafa þeir báðir átt stórglæsilega sólóferla ásamt því að hafa unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert einasta mannsbarn þekkir.

KK & Mugison til halds og trausts verður hinn fjölhæfi Þorleifur Gaukur sem spilar á slide gítar og munnhörpu.

Í fyrra seldist upp á 4 tónleika og komust færri að en vildu. Það gæti verið skynsamlegt að tryggja sér miða sem fyrst.

ATH - Frjálst sætaval er á tónleikana, það gæti því verið skynsamlegt að mæta snemma til að ná bestu sætunum. Kirkjan opnar 30 mín áður en að tónleikarnir hefast.

Tónleikarnir eru pásulausir og standa í 60 mínútur.

Aðeins 250 miðar í boði.