Tix.is

Um viðburðinn

MADAME TOURETTE er uppistandseinleikur Elvu Daggar Hafberg Gunnarsdóttur, þar sem hún fjallar á óvæginn og meinfyndinn hátt um fötlun sína og kjör öryrkja á Íslandi.

Elva Dögg hefur starfað sem uppistandari í rúman áratug og jafnan vakið athygli fyrir einstakan húmor sinn og dirfsku við að opinbera þau áhrif sem alvarleg Tourette röskun hefur á líf hennar, jafnt einkalíf, félagslíf, kynlíf og afkomu. Hún veitir áhorfendum sínum innsýn í heim sem margir vilja síður vita af, en af hispursleysi og glettni sýnir hún okkur á eftirminnilegan hátt hvernig kímni hennar og einstök sýn á heiminn hefur bjargað lífi hennar.

Kvöld með Elvu Dögg er öllum ógleymanlegt, bæði upplýsandi og um leið óborganlega skemmtilegt.

Sýningin er ríflega 60 mínútur

HÖFUNDUR OG FLYTJANDI: Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir
LEIKSTJÓRI: Ágústa Skúladóttir
LEIKMYND OG BÚNINGAR: Þórunn María Jónsdóttir
LJÓSAHÖNNUN: Ólafur Ágúst Stefánsson