Tix.is

Um viðburðinn

UPPSELT!

MIÐAHAFAR ATHUGIÐ: ÖLL NOTKUN FARSÍMA ER STRANGLEGA BÖNNUÐ FYRIR OG Á MEÐAN SÝNINGU STENDUR. BROTLEGUM VERÐUR VÍSAÐ Á DYR.

19:00 - Húsið opnar
20:00 - Sýning hefst

-------

Leikarinn og uppistandarinn Tom Segura er eitt stærsta nafn uppistandara í dag og hefur verið uppselt á sýningu hans I‘m Coming Everywhere á meira en 200 sýningum um heim allan. Segura er þekktastur fyrir Netflix þætti sína Ball Hog (2020), Disgraceful (2018), Mostly Stories (2016) og Completely Normal (2014). Í júlí síðastliðnum gaf Segura út metsölubók sína I‘d Like To Play Alone, Please og fékk bókin mikið lof gagnrýnenda. Þá heldur hann úti hlaðvarpsþáttunum Your Mom‘s House ásamt eiginkonu sinni og grínistanum Christina Pazsitzky, 1 Bears 1 Cave sem hann stýrir ásamt Bert Kreischer og fleiri hlaðvarpsþáttum.
 
Segura hefur einnig leikið í kvikmyndunum Countdown á móti leikkonunni Elizabeth Lail, Instant Family á móti Mark Wahlberg og Rose Byrne, Opening Act og Flinch. Þá hefur Segura komið fram í sjónvarpsþáttunum The Late Show með Stephen Colbert, Conan, Workaholics, Happy Endings, The Late Late Show, auk eigin þátta á Comedy Central sjónvarpsstöðinni.
 
Þegar Segura er ekki á sviði eða að hljóðrita hlaðvarp horfir hann á ameríska háskólafótboltann. Á samfélagsmiðlum er Segura með @seguratom á Instagram og @tomsegura á Twitter.

Tvö verðsvæði eru í boði:
- A svæði:    9.990 kr.     (rautt á mynd)
-B svæði:     8.990 kr.     (blátt á mynd)

Sjá mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live