Kvennakvöld Gróttu verður haldið í hátíðarsal félagsins laugardagskvöldið 5. nóvember næstkomandi. Nú þegar er komin spenningur fyrir kvöldinu og margar sem ætla að mæta!
Fordrykkur frá kl. 18:00
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingiskona og fyrrum Nesbúi mun stýra kvöldinu.
Ljúffengt smáréttahlaðborð frá Matarkompaní.
Glæsilegt happdrætti! Nú þegar hafa um 30 fyrirtæki gefið flotta vinninga og enn bætist á listann.
Ræðukona kvöldsins er Seltirningurinn Sigríður Dögg Guðmundsdóttir.
Fyrir hópa er hægt að bóka borð í gegnum tölvupóst grotta@grotta.is
Kvennakvöldið er fjáröflun fyrir meistaraflokka knattspyrnu- og handknattleiksdeildar Gróttu.
Nánari upplýsingar um vinninga og annað verður birt á Facebook viðburði facebook.com/events/785651119152792