Tix.is

Um viðburðinn

Ævintýri í Jólaskógi verður flutt í Guðmundarlundi á aðventunni, þriðja
árið í röð.

Við stefnum á að setja upp sýninguna, aftur og aftur, um ókomin ár en
gera um leið einhverjar breytingar á hverju ári. Þannig förum við aðra
leið í gegnum skóginn en í fyrra, heyrum nýjar sögur af uppáhalds
tröllafjölskyldunni okkar og kynnumst jafnvel einhverjum nýjum persónum
sem við höfum ekki hitt áður.

Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng sýning þar sem
áhorfendur ganga í litlum hópum um skóginn í Guðmundarlundi, vopnaðir
vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr jólafjölskyldu okkar
Íslendinga, þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini þeirra.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að
skyggja. Þannig byrjar fyrsta sýning hvers dags klukkan 17.00 og leggur
þá fyrsti hópurinn af stað í vasaljósagöngu inn í skóginn. Ferðalagið
hefur verið varðað með jólakúlum, luktum og öðru jólaskrauti svo
áhorfendur eigi það ekki á hættu að villast í skóginum.

Eftir stutta göngu koma áhorfendur svo að fyrsta „sviðinu" en þar er vel
tekið á móti hópnum og flutt lítil jólasaga um ævintýri
tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrri tíma. Verkið er
tæpar tíu mínútur í flutningi og þegar því lýkur heldur hópurinn áfram
ferð sinni um skóginn. Litlu innar rekast áhorfendur á fleiri tröll en
alls er um að ræða fjögur „svið“, fjórar litlar sögur, sem hver um sig
er flutt af einhverjum íbúa Grýluhellis. Gönguferðin tekur þannig tæpan
klukkutíma og að henni lokinni er öllum boðið í myndatöku með jólasveini
auk þess sem boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, koma vel skóaðir og
með vasaljós en öll þessi atriði eru nauðsynleg til að hægt sé að njóta
sýningarinnar til hins ítrasta.

Ævintýri í Jólaskógi var frumflutt fyrir jólin 2020 og er þetta því
þriðja árið sem www.jolasveinar.is bjóða upp á þessa skemmtilegu
sýningu. Verkið er eftir Önnu Bergljótu Thorarensen og er það hún, ásamt
Andreu Ösp Karlsdóttur, Hlyni Þorsteinssyni, Sigsteini Sigurbergssyni,
Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Þórunni Lárusdóttur sem ber ábyrgð á
því að jólasveinafjölskyldan skili sem bestu verki. Flest þekkjum við
þau fyrir störf sín með Leikhópnum Lottu og eru þau vön að setja upp
sýningar utandyra þó vissulega sé óvenjulegt að þau velji náttúruna sem
sýningarstað svona að vetri til.

Við mælum með sýningunni fyrir fjögurra ára og eldri en að sjálfsögðu
eru allir velkomnir til okkar. Leiðin er þó ekki fær kerrum svo yngstu
börnunum þarf að halda á ef þið þurfið að hafa þau með í för. Þá biðjum
við ykkur um að skilja hunda eftir heima og er það bæði svo þeir trufli
ekki sýninguna og aðra gesti. Frítt er fyrir 2 ára og yngri.

Miðaverð er 3.300 krónur á mann

Ummæli

Gleymdum jólastressi um stund og skelltum okkur í Guðmundarlund! Vopnuð
vasaljósum fórum við í stórskemmtilegt útileikhús í ævintýralegum
jólaskógiMæli með!

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir

Við komum til ykkar í byrjun desember í Guðmundarlund og það var
algjörlega dásamlegt, þvílíkt flott hugmynd hjá ykkur og æðislegt að fá
leiksýningu í miðjum skóginum. Þið eruð að vinna svo flott starf.

Inga Berg Gísladóttir

Fór á sýninguna ykkar í gær og töluðum ég og konan um að ef þetta verður
komandi ár verður þetta fastur liður á jólum þar sem börnin okkar á
bilinu 3-13 skemmtu sér öll jafn mikið í þessu ævintýri.

Hilmar Ólafsson

Þetta var það jólalegasta sem við höfum gert

Krakkarnir himinlifandi og ég ekki síður ánægð með þetta

Íris Ágústsdóttir

Fór með krakkana í gærkvöldi og almáttugur hvað þetta var gaman!

Ari Brynjólfsson