Tix.is

Um viðburðinn

Gestir athugið:

1. Svæði B er uppi á svölum og vegna þess að söngvarar nýta einnig gólfrými á 1.hæð á sýningunni þá er takmarkað sjónarhorn á nokkrum stöðum í sýningunni

2. Stærri hópar geta haft samband á kammeroperan@gmail.com til að fá sæti saman

3. Gjafabréf á Óperukvöldverðinn í jóla- eða afmælispakkann má nálgast á kammeroperan@gmail.com 

4. Mikilvægt er að áheyrendur láti vita sem fyrst á kammeroperan@gmail.com vegna ofnæmis eða óþols


Forréttur

Léttreykt bleikja & grillað humarsalat
Brúnað blómkál, dill, græn epli & vinagreta
-
Rauðrófu carpaccio
Toffí rauðrófa, trufflu mæjó, klettasalat, sólblómafræ & croutons (v)

Aðalréttur

Grilluð lambasteik
Villisveppasósa, kartöflupressa, bakaðar gulrætur & gulrótarmauk
-
Grilluð Seljurótar- & hnetusteik
Steiktir villisveppir, seljurótamauk, freyðandi jurtasósa & laukgljái (v)

Eftirréttur

Karamellu- og súkkulaðimús, salthnetur & saltkaramella
-
Vegan súkkulaðimús
Hindber, hindberja sorbet & hafra mulningar (v)


Óperukvöldverður í Gamla bíó - Così fan tutte eftir Mozart er fyrsta óperuuppfærsla Kammeróperunnar sem er nýstofnað tónlistarfélag á Íslandi. Sýningin býður upp á einstaka kvöldstund fyrir áheyrendur þar sem þau snæða þriggja rétta kvöldverð á vegum Gamla bíó og hlýða í leiðinni á frjálslegan og skemmtilegan flutning á óperunni Così fan tutte. Óperan verður flutt í íslenskri þýðingu í fyrsta sinn. Það er trú okkar að þegar óperuverk eru flutt á móðurmáli flestra áheyrenda og flytjenda að upplifun þeirra á verkinu verði áhrifameiri og ánægjulegri.


Þegar áheyrendur mæta í Gamla bíó stíga þau inn í tímavél sem flytja þau til Reykjavíkur í byrjun 20. aldar. Flytjendur eru í hlutverkum staðarhaldara Gamla bíó, þjóna til borðs og leika í kringum áheyrendur sem njóta matar, drykkjar, söngs og hljóðfæraleiks fram eftir kvöldi. Létt andrúmsloft ríkir yfir söguþræði verksins en þótt dramtíkin sé vissulega til staðar þá er húmorinn rauður þráður í óperunni.


Óperan Così fan tutte er ein þekktasta og vinsælasta ópera hins mikla meistara Mozarts en hefur ekki verið flutt á Íslandi síðan 2008 af óperustúdíó Íslensku óperunnar. Óperan fjallar um tvo vini, Guglielmo og Ferrando sem fara í veðmál við Don Alfonso sem er eldri og þykist vitrari. Don Alfonso telur að allar konur séu ótrúar, eða allar konur eins (líkt og tiltillinn, Cosi fan tutte, gefur til kynna). Þeir ákveða að dulbúa sig og sanna það fyrir Don Alfonso að þeirra kærustur Fiordiligi og Dorabella séu vissulega trúar sama hvað. Þetta hefur í för með sér skemmtilega og fyndna atburðarás sem endar með ósköpum.



Bjarni Thor Kristinsson leikstýrir sýningunni og Gísli Jóhann Grétarsson er hljómsveitarstjóri. Söngvarar eru Unnsteinn Árnason sem Guglielmo, Eggert Reginn Kjartansson sem Ferrando, Kristín Sveinsdóttir sem Dorabella, Lilja Guðmundsdóttir sem Fiordiligi, Jón Svavar Jósefsson sem Don Alfonso og Jóna G. Kolbrúnardóttir sem Despina.


Fyrstu sýningar voru uppseldar í Iðnó 26. og 27. október 2022 en nú hefur eftirfarandi aukasýningum verið bætt við í Gamla bíó:


4. febrúar 2023 kl. 18:30 (húsið opnar 18:00)

10. febrúar 2023 kl. 18:30 (húsið opnar 18:00)


Gamla bíó er með hjólastólaaðgengi. Beðið er um að haft sé samband á kammeroperan@gmail.com ef viðkomandi þarf á hjólastólaaðgengi að halda.