Uppselt er á tónleikana en hægt verður að kaupa aðgang að streymi hjá bæði Vodafone og Símanum. Eins er hægt að kaupa aðgang út um allan heim hjá Livey
Eyjanótt – 1973 2023
Eyjatónleikar 21.janúar í
Hörpu
Í Eldborgarsal Hörpu ætlum við
að minnast og gleðjast. Minnast þessa stærsta atburðar í seinni tíma
Íslandssögunni en ekki síður að gleðjast yfir hve vel allt fór þrátt fyrir
allt. Við flytjum mörg af bestu lögunum sem við tengjum við Eyjar.
Þar er af nógu að taka.
Flytjendur eru: Klara Elías, Jóhanna Guðrún, Stefán Hilmars, Magnús Kjartan, Hreimur, Sverri Bergmann, Halldór Gunnar, Jarl Sigurgeirs og Eygló Scheving, ásamt Kristjáni Gísla, Ölmu Rut, Kvennakór Vestmannaeyja og Karlakór Vestmannaeyja.
Stórhljómsveit undir stjórn Þóris Úlfarssonar og strengja- og blásturssveit
Jarðeldarnir á Heimaey er eina eldgosið sem
hófst í byggð á Íslandi, og urðu 1350 fjölskyldur, eða um 2,5%
þjóðarinnar, heimilislaus í einu vetfangi þegar 1,6 km gossprunga opnaðist við
bæjardyr Vestmanneyinga. Eldgosið var ekki bara áfall fyrir íbúa Heimaeyjar
heldur einnig þungt efnahagslegt
högg fyrir hið unga lýðveldi Ísland, þar sem
Vestmannaeyjar voru stærsta verstöð landsins - skapaði um 12% útflutningstekna.
Þegar svartnættið var sem mest spáði einn
helsti eldfjallafræðingur heims að Eyjarnar myndu aldrei aftur byggjast.
Vonlítil baráttan krafðist seiglu og staðfestu og munaði þar mikið um einurð og
staðfestu Ólafs Jóhannessonar, þáverandi forsætisráðherra. ,,Vestmannaeyjar skulu
rísa“, eru að margra, ein allra mögnuðustu orð stjórnmálaforingja í
lýðveldissögunni en þessi eftirminnilegu orð lét hann falla þegar öll sund
virtust lokuð. Eyjamenn héldu heim, hreinsuðu Heimaey og hófu ótrúlega
endurreisn.