Tix.is

Um viðburðinn

fNÝTT UPPHAF

Þann 11. nóvember kl 20.00 verða Gala tónleikar hjá Íslensku óperunni til að fagna nýju starfsári án takmarkana.

Til stóð að halda tónleikana á afmælisstarfsárinu 2019 vegna 40 ára afmælis ÍÓ, en þeim var frestað vegna heimsfaraldursins.

Á tónleikunum mun Kristján Jóhannsson taka á móti góðum gestum sem syngja bæði einsöngs- og samsöngsatriði. Hljómsveit Íslensku óperunnar leikur undir stjórn Kornilios Michailidis.

Efnisskráin verður mjög fjölbreytt og sett saman af vel þekktum verkum m.a. eftir Mozart, Verdi og Puccini.

Meðal þeirra sem koma fram eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Már Ólafsson, Gunnar Björn Jónsson og Oddur A. Jónsson.

 

Kristján á að baki glæstan alþjóðlegan feril sem óperusöngvari og hefur komið fram í flestum virtustu óperuhúsum heims. Hann söng hlutverk Cavaradossi í uppfærslu Íslensku óperunnar á TOSCA árið 2017 og hafði þá sungið hlutverkið 400 sinnum í ólíkum uppfærslum á farsælum söngferli sínum.