Tix.is

Um viðburðinn

Saga Garðars & Snorri Helga í Valhöll, Eskifirði.

Hjónin Snorri Helgason tónlistarmaður og Saga Garðarsdóttir grínkona halda gill í félagsheimili Eskfirðinga Valhöll laugardagskvöldið 1. október 2022. Snorri opnar kvöldið og spilar sína þjóðlðagaskotnu poppmúsík og svo tekur Saga við og flytur uppistand sitt.

Saga Garðarsdóttir er einn vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar um þessar mundir. Hún er leikkona og uppistandari, er nýbúin að eignast barn og giftast þjóðlagasöngvara og gerir grín að sjálfri sér og okkur öllum. Löng kona sem enginn má missa af!

Snorri Helgason er að gefa út nýja plötu sem ber heitið Víðihlíð en lög af henni eins og “Ingileif”, “Haustið ’97” og “Hæ Stína” hafa verið mikið spiluð á öldum ljósvakans síðustu misseri. Snorri flytur lög af þessari nýju plötu í bland við tónlist af sínum langa ferli.


Miðasala á Tix og við innganginn. Miðaverð 4900kr

---

Fyrr um daginn bjóða þau Saga og Snorri börnum upp á barnaball í Valhöll í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar og Tónlistarmiðstöð Austurlands. Ballið er hluti af BRAS.