Tix.is

Um viðburðinn

Jülevenner Emmsjé Gauta 2022: Í síðasta skipti… Jesú endurfæddur

Í tilefni jólanna 2022 boðar Emmsjé Gauti í samvinnu við Tuborg Julebryg, World Class, Nike og Dominos til jólaveislunnar Jülevenner Emmsjé Gauta.

Hátíðin hefur fest sig í sessi sem ein af jólahefðum þjóðarinnar og flykkjast árlega þúsundir Íslendinga í Háskólabíó til að berja Jülevenner augum.

Ásamt Gauta koma fram Ragga Gísla, Club Dub, Saga Garðars, Jesú Kristur og Úlfur Úlfur. Aðstoðarmaður Gauta, inn-á-leiðarinn Emil Alfreð verður á sínum stað aðdáendum til mikillar gleði.

A.T.H - Þetta eru alls ekki síðustu Julevenner tónleikarnir. Við erum bara að segja það til að selja fleiri miða.

Ath. Tónleikarnir þann 23. desember kl. 15 eru fjölskyldutónleikar. 

Ath. á kvöldsýningum eru atriði sem eru ekki við hæfi barna.