Kótilettukvöld Samhjálpar.
Árlegt fjáröflunarkvöld Samhjálpar verður í ár haldið í veislusal Vals við Hlíðarenda þann 18. október.
Dagskráin hefst hefst kl 19.00 og stendur til 22.00
Boðið verður upp á gómsætar kótilettur ásamt meðlæti og því ætti enginn að fara svangur heim.
Góð tónlist, reynslusögur og þögult uppboð er meðal atriða. Einnig er aðgöngumiðinn á viðburðinn happdrættismiði þar sem hægt er að hreppa glæsilega vinninga.
Vinningaskrá inniheldur m.a vinninga frá:
Lín-design
Laugarvatn Fontana
Reykjavik Excursions
Vera-design og fleiri góðum aðilum.
Allur ágóði rennur til viðamikils starfs Samhjálpar.
Hvað er betra en að njóta tónlistar og veitinga í góðra vina hópi, og styrkja gott og þarft málefni í leiðinni?
Við hlökkum til að sjá sem flesta!