Tix.is

Um viðburðinn

Árið 1772 kom út í fyrsta sinn Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar sem byggir á rannsóknum fræðimannana tveggja á landsháttum á Íslandi og lífi Íslendinga. Síðan hefur margt breyst en það hefur farist fyrir að uppfæra rannsóknir Eggerts og Bjarna, fyrr en nú.

Hinn víðföruli Borgfirðingur, Gisli Einarsson, hefur undanfarinn aldarfjórðung ferðast fram og aftur um landið, hring eftir hring og aftur til baka og stúderað landshætti og líf landans með það að markmiði að taka upp þráðinn þar sem Eggert og Bjarni skildu við. Það markmið náðist ekki!

Vinnubrögð Gísla eru ófagleg og hvarvetna er kastað til höndum. Útkoman er því einhverskonar mislukkað grín þar sem hæðst er á ósmekklegan hátt að einstaka byggðarlögum og íbúum þeirra.

Þar sem enginn bókaútgefandi hefur sýnt verkinu áhuga (eðlilega) þá verður það flutt munnlega á Sögulofti Landnámssetursins í ársbyrjun 2023.

Höfundur og flytjandi: Gísli Einarsson

 

Frekari upplýsingar: Viðburðirnir | Landnámssetur Íslands (landnam.is)