Tix.is

Um viðburðinn

**AUKATÓNLEIKAR KOMNIR Í SÖLU**

Björn Thoroddsen, ásamt fríðu föruneyti sínu, heldur stórtónleika þann 12. nóvember í Bæjarbíói, Hafnarfirði. Gítarveisla Bjössa Thor er sett upp með því markmiði að skapa töfrandi tónlistarupplifun fyrir áhorfendur, þar sem gítarinn verður í aðalhlutverki.

Það stefnir í sannkallaða flugeldasýningu í ár því aðalgestur veislunnar verður Robben Ford  sem án nokkurs vafa er einn allra færasti gítarleikari heimsins í dag og heimsækir Ísland heim í annað skiptið.

Robben er blús gítarleikari í grunninn en er þó ómögulegt að setja í kassa þegar kemur að tónlistarstefnum. Samstarfsmenn hans í gegnum tíðina segja allt sem segja þarf: Miles Davis, Joni Mitchell, George Harrison, KISS og Björn Thoroddsen.

Guitar Islandico mun einnig stíga á stokk og leika listir sínar ásamt húshljómsveitinni sem hefur sjaldan verið þéttari. Láttu þig ekki vanta og kauptu miða strax í dag!

 

* Robben Ford *

Björn Thoroddsen * Jón Rafnsson * Þórður Árnason

Andri Ívarsson * Hálfdán Árnason * Sigfús Óttarsson