Tix.is

Um viðburðinn

Ukulellur, ukulele-spilandi lesbíur á besta aldri, koma funheitar frá Hinsegin dögum í Reykjavík og einni stærstu Pride-hátíð Þýskalands. Þær syngja um ástir og örlög, rafmagnsverkfæri og raunir, gleði og gleraugu, öxulþungaþokkadísir, “vinkonur” og heitar lessur.