Tix.is

Um viðburðinn

Kenney Jones og félagar hans í The Jones Gang hafa allir lifað og hrærst í breskri tónlistarsenu frá unga aldri. Eða allt frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Hér er því tækifæri til að hlusta á rætur breska rokksins. Lög flutt af tónlistarmönnum sem hafa starfað í fjölmörgum hljómsveitum í gegnum árin eins og Small Faces, Faces, The Who, Humble Pie, Bad Company og fleiri þekktum hljómsveitum.

Hljómsveitin var á sínum tíma stofnuð til styrktar vini þeirra, bassaleikaranum Ronnie Lane, en hann lést úr MS-sjúkdómnum. Allur ágóði tónleikanna í Háskólabíói 27. október rennur til rannsókna á MS sjúkdómnum, í samstarfi við MS-félagið á Íslandi.

Íslenska hljómsveitin 13-Tungl með Hrólf Jónsson í fararbroddi sér um upphitun.

Miðaverð í forsölu 8.900 kr. Miðaverð við inngang 9.900 kr.