Katrín Halldóra kemur loksins heim til að halda tónleika fyrir Austfirðinga dagana 3. og 4. september!
Með Katrínu Halldóru spilar Hjörtur Ingvi Jóhannsson á píanó.
Á efnisskránni verða vinsæl dægurlög héðan og þaðan og ætti enginn láta þennan viðburð framhjá sér fara en hér er á ferðinni viðburður sem margir hafa beðið lengi eftir!
Katrín Halldóra hefur hlotið mikið lof fyrir störf sín í leikhúsi en þar má nefna fjölmargar Grímutilnefningar og hlaut hún Grímuna 2017 sem söngvari ársins fyrir Ellý.
Tónleikarnir eru hluti af Tónaflugi í Neskaupstað sem er samstarfsverkefni SÚN, Beituskúrsins/Hildibrand og Menningarstofu Fjarðabyggðar.