Tix.is

Um viðburðinn

Don Pasquale, gamall forríkur piparsveinn á biðilsbuxunum. Ernesto, ungur og myndarlegur frændi hans og einkaerfingi. Hin glæsilega Norina, ung og efnalítil ekkja. Læknirinn og bragðarefurinn Malatesta setur af stað óborganlega atburðarás í þessari ærslafullu gamanóperu sem er full af ljúffengum laglínum og leiftrandi fjöri. Sviðslistahópurinn Óður neitar að geyma óperur í glerkössum. Þau vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim, pota í óskrifaðar reglur og skemmta sér og öðrum. Þau trúa á nálægð við áhorfendur og einlæga túlkun á tungumáli sem áhorfendur skilja.

Fyrsta sýning þeirra, Ástardrykkurinn, sló rækilega í gegn á síðasta leikári.
Úr gagnrýni um Ástardrykkinn:

“Þetta er vægast sagt frábærlega heppnað hjá Óði. Það má ekki á milli sjá hvert þeirra nýtur sín best. [...] Það er afslöppuð en orkurík leikgleði í öllum framgangi flytjendanna.”
ÞT - MBL

“Þetta unga fólk syngur svo vel að ekki þarf að kvíða óperuflutningi á Íslandi í framtíðinni. [...] [Ö]ll fjögur eru fínir leikarar sem tjá allar þessar ruglingslegu tilfinningar eins og þau skilji þær djúpum skilningi.”
 SA - TMM


“Fjörug og full af lífi, og góð skemmtun líka fyrir fólk sem ekki þekkir vel til óperumenningar.”
SB - RÚV


 Don Pasquale er samstarfsverkefni Óðs og Þjóðleikhússins, og er styrkt af Sviðslistasjóði og Launasjóði sviðslistafólks.