Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Systur efna til tónleikaraðar um Ísland í lok sumars og mæta í Bæjarbíó 27. ágúst nk. Sigga, Beta og Elín hafa unnið að lagasmíðum í sumar og senda frá sér sína fyrstu smáskífu, Dusty Road í ágústlok. Í leiðinni munu Systur kynna frumsamið efni sem kemur út á væntanlegri plötu á næsta ári.
 
Systur komu sáu og sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr á þessu ári þegar Lay Low bað þær um að flytja lagið sitt, Með hækkandi sól. Í framhaldinu ákváðu þær að vinna saman að plötu í þeirri tónlistarstefnu. Fólk má því búast við þjóðlagaskotnu efni frá þeim með tengingum við bandaríska sveitatónlist sem hefur haft áhrif á lagasmíðar þeirra í gegnum árin.